11.11.2024

Stjórn Lyfjaauðkennis hefur ákvarðað árgjöld markaðsleyfishafa fyrir árið 2025.

Sem fyrr, leitast stjórn Lyfjaauðkennis við tryggja að gjaldtaka verði ekki íþyngjandi fyrir aðila sem vilja koma inn á íslenska lyfjamarkaðinn.

Árgjöld Lyfjaauðkennis fyrir árið 2025:

  • Fyrir MLH með ársveltu 2024 skv. IDM yfir 142,000 €* (21,1 m ISK): 3.317 € (493.300 ISK)
  • Fyrir MLH með ársveltu 2024 skv. IDM undir 142,000 €* (21,1 m ISK): 1.017 € (151.230 ISK)
  • Fyrir MLH með IDM ársveltu 2024 undir 41,000 €* (6,1 m ISK): 303 € (45.050 ISK)
    * ársvelta samkvæmt IDM tekur mið af veltu síðustu 12 mánaða (október MAT).

Fyrir nánari upplýsingar er bent á að senda fyrirspurn á netfangið  info@lyfjaaudkenni.is.