21.10.2021

Rekstur Lyfjaauðkennis er fjármagnaður með innheimtu árgjalda af markaðsleyfishöfum (MLH). Tekjur félagsins standa undir erlendum kostnaði til þjónustuaðila lyfjaauðkenniskerfisins og EMVO sem og öðrum lögboðnum verkefnum félagsins.

Rekstrakostnaður Lyfjaauðkennis er að stærstum hluta í erlendri mynt og því birtir félagið árgjaldið í evrum. Innlendum samningsaðilum verða sendir reikningar í íslenskum krónum og verður miðað verður við gengi á útgáfudegi í byrjun árs 2022.

Nýverið tók stjórn Lyfjaauðkennis ákvörðun um árgjöld félagsins fyrir árið 2022. Árgjöldin lækka um 10% frá fyrra ári í evrum talið :

  • Fyrir MLH með ársveltu 2021 skv. IDM yfir 80,000 €* er árgjaldið 3.969 €
  • Fyrir MLH með ársveltu 2020 skv. IDM undir 80,000 €* er árgjaldið 1.215 €
  • Fyrir MLH með IDM ársveltu 2020 undir 16,000 €* er árgjaldið 365 €
    * ársvelta samkvæmt IDM er umreiknuð í evrur með meðalgengi ársins 2021.

Ef óskað er nánari upplýsingar er bent á að senda fyrirspurn á netfangið info@lyfjaaudkenni.is.