23.02.2023

Aðalfundur Lyfjaauðkennis ehf. var haldinn fimmtudaginn 23. febrúar kl. 17. Að þessu sinni var fundurinn haldinn á Hilton Nordica hótelinu en einnig var boðið upp á þátttöku með rafrænum hætti. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf.

Ný stjórn félagsins var kjörin á aðalfundinum til eins árs. Stjórninn er skipuð fjórum fulltrúum hluthafa og fulltrúar félagsmanna í stjórn (lyfjaheildsalar sameiginlega, lyfsalar sameiginlega og heilbrigðisstofnana sameiginlega) eru samtals þrír. Varamenn í stjórn eru valdir með sama hætti.

Stjórn Lyfjaauðkenni er nú skipuð eftirfarandi einstaklingum:
Aðalmenn f.h. hluthafa: Bessi H. Jóhannesson, Guðmundur Óskarsson, Sigrún Edwald og Yrsa Örk Þorsteinsdóttir. Aðalmenn f.h. félagsmanna: Guðrún Anna Pálsdóttir, Soffía Magnúsdóttir og Eva María Þórhallsdóttir. Varamenn f.h. hluthafa: Elísabet Tómasdóttir, Atli Sigurjónsson, Fanney Ásgeirsdóttir og Brynja Dís Sólmundsdóttir. Varamenn f.h. félagsmanna: Þórbergur Egilsson, Ólafur Adolfsson og Tinna Rán Ægisdóttir.

Á fundinum bauð formaður félagsins þau Soffíu, Atla og Fanney  velkomin í stjórn um leið og hann þakkaði fráfarandi fulltrúum í stjórn, þeim Unni Björgvinsdóttur, Hálfdani G. Gunnarssyni, Jóni Óskari Hinrikssyni og Guðlaugu Ingvarsdóttur kærlega fyrir samstarfið.

Fráfarandi fulltrúar í stjórn Lyfjaauðkennis ehf

Fráfarandi fulltrúar í stjórn, þau Unnur Björgvinsdóttir, Hálfdan G. Gunnarsson og Jón Óskar Hinriksson með Hjörleifi Þórarinssyni framkvæmdastjóra og Guðmundi Óskarssyni, formanni stjórnar. Á myndina vantar Guðlaugu Ingvarsdóttur.

Skýrslu formanns í heild sinni má finna hér:  2023_02_23_Lyfjaauðkenni_Aðalfundur-skýrsla-formanns.