Lyfjaauðkenni – upplýsingar
Lyfjaauðkenni ehf. (enskt heiti er The Icelandic Medicines Verification Organisation (ICEMVO)), stendur vörð um öryggi sjúklinga gagnvart þeirri vá sem stafar af fölsuðum lyfjum.
Tilgangur Lyfjaauðkennis ehf. er að starfrækja innlent auðkennis- og gagnasamskiptakerfi fyrir lyf sem uppfyllir kröfur tilskipunar og reglugerðar ESB/EES og þannig vera hluti af Evrópska lyfjaauðkenniskerfinu. Til að ná þeim markmiðum og tryggja öryggi sjúklinga, starfar félagið með markaðsleyfishöfum lyfja og þeim aðilum sem starfa að dreifingu og afhendingu lyfja. Lyfjaauðkenni ehf. er ekki rekið í hagnaðarskyni.
Lögheimili Lyfjaauðkennis og starfsstöð:
Reykjavíkurvegur 76
220 Hafnarfirði
Ísland
Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur Þórarinsson, framkvæmdastjóri, netfang info@lyfjaaudkenni.is